Til hnífs og skeiðar

Matvæli - fæðuöflun – úrvinnsla – neysla

Matreiðslukennsla á Akureyri veturinn 1913-1914

George Schrader var auðugur þýskur maður, búsettur í Bandaríkjunum. Hann varði auði sínum til líknarmála og var sérstakur velgjörðarmaður Akureyringa. Eitt af því sem hann tók sér fyrir hendur var að koma á fót matreiðslunámskeiði fyrir ungar stúlkur í Caroline Rest, gistihúsi því sem hann hafði látið byggja fyrir hesta og reiðmenn sem til bæjarins komu.

Jóninna Sigurðardóttir (1879-1962)

Jóninna Sigurðardóttir (1879-1962) kenndi matreiðslu á námskeiðum, í matreiðsluskólanum í Caroline Rest og í húsmæðraskóla í húsi Ræktunarfélags Norðurlands. Frá 1915 átti hún og rak Hótel Goðafoss en margir höfðu á orði að þar hefðu þeir fengið þann besta mat sem þeir hefðu nokkru sinni smakkað.

Veturinn 1913-1914 fengu sextíu stúlkur ókeypis kennslu á hans kostnað. Hann fékk til liðs við sig til að kenna matreiðsluna hinn rómaða húsmæðrakennara Jóninnu Sigurðardóttur frá Draflastöðum, sem síðar var hóteleigandi og hótelstjóri Hótels Goðafoss í Hafnarstræti 95. Eftir að námskeiðinu lauk hvatti George Jóninnu til að gefa út bók með uppskriftum sínum sem hún hafði notast við á námskeiðinu og studdi hana fjárhagslega til þess. Bókin kom út árið 1915 og heitir Matreiðslubók fyrir fátæka og ríka. Bókin skiptist í almennan mat, sunnudagsmat, tækifærisrétti, íslenska matargerð (s.s. sláturgerð og kæfulögun) og smárétti. Að lokum er sagt frá samsetningu matseðla, hvernig dúka skal borð og almennum borðsiðum.

Í þriðju útgáfu matreiðslubókar Jóninnu Sigurðardóttur (útg. 1927) er m.a. uppskrift af sítrónubúðingi sem kallast ,,Ettu mig“.

Í þriðju útgáfu matreiðslubókar Jóninnu Sigurðardóttur (útg. 1927) er m.a. uppskrift af sítrónubúðingi sem kallast ,,Ettu mig“.

 

Next Post

Previous Post

© 2025 Til hnífs og skeiðar

Theme by Anders Norén